top of page

15 ÁR - 15 TÍMA KEPPNI

Í tilefni 15 ára afmælis hlaupsins verður keppt í 15 klst. hlaupi og Mt. Esja hálfmaraþoninu, ásamt ævintýrahlaupi fyrir börn. Mt. Esja Ultra Maraþonið verður aftur á dagskrá 2027. 

 

Skráning hefst 2. febrúar kl. 12:00! 

 

Esjan í 15 ár/15klst. áskorun

Hversu oft klukkar þú Steininn á 15 klst.?

 

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum (þau sem fara lengst). Sigurvegarar í karla- og kvennaflokki fær hinn margrómaða verðlaunagrip ESJUSTEININN, sem er handgerður af steinsmiðnum Þóri Sigmundssyni og eru steinarnir sérvaldir í hlíðum Esjunnar. 

 

Einnig verða veitt verðlaun fyrir þau (konu og karl) sem eru fyrst með 5 ferðir og 10 ferðir. ATH. sami aðili (karl og kona) getur verið fljótastur með 5 og 10 ferðir og farið lengst. 

 

Keppendur fá skráðan fjölda ferða ásamt tíma (ath. aðeins marktíma) í úrslit á timataka.net. fyrir 5, 10 eða 15 ferðir. ITRA: Tímar fyrir 5, 10 og 15 ferðir verða skráðir á ITRA (ath. sú vegalengd sem keppandi fer lengst (5, 10 eða 15)).

 

Þegar keppnistímanum er lokið (15 klst.) og tveir eða fleiri keppendur hafa farið lengst og lokið jafnmörgum ferðum sigrar sá sem var fyrstur með síðustu ferðina. Þannig að tíminn í markinu eftir síðustu ferðina gildir en ekki staðsetning/vegalengd á keppnisleiðinni eftir 15 klst. 

 

Keppendum er frjálst að ljúka keppni þegar þeir vilja en verða að fara 5 ferðir til að fá ekki DNF. 

 

Keppnin hefst kl. 8:00 þann 13. júní og lýkur kl. 23:00 (15 klst.). 

ATH. takmarkað pláss er í 15 klst. keppnina! 

Hægt verður að sækja rás númerið í verslun 66°Norður Faxafeni frá klukkan 16:00-18:00 þann 13. júní.  

106114425_1784297995027650_3981958229548523253_o.jpg
MtEsjaUltra_2024-17.jpg

Mount Esja Ultra © 2020 

bottom of page